Leikskólinn Grænuvellir

Leikskólinn Grænuvellir

Árholt

Velkomin(n) á vefsíðu Árholts

 Árholt 2010-2011

Nýjustu fréttir

  • Helgarfrí

    Árholt - föstudagur 3.sep.10 13:26 - Lestrar 13
    Helgarfrí...

  • Föstudagur 27 ágúst

    Árholt - föstudagur 27.ágú.10 13:15 - Lestrar 6
    Afmælisbarn

    Í dag héldum við upp á afmælið hennar Anítu Rakelar, en hún verður 3 ára á sunnudaginn. Hún valdi að gefa börnunum ískex og voru alllir hæstánægðir með það. Að sjálfsögðu voru teknar myndir og má sjá þær hér. Að öðru leiti vorum viði úti í dag en gott veður. Við minnum á að leikskólinn er lokaður á mánudaginn vegna þingdags kennara. Hittumst hress á þriðjudag.

    Settum hér inn nokkrar myndir teknar af börnunum í leik þessa vikur.

    Takk í dag og góða helgi

    Kennarar á Árholti.

  • Miðvikudagur 26 ágúst

    Árholt - fimmtudagur 26.ágú.10 15:10 - Lestrar 4

    Ferðin upp á Hvamm í gær gekk mjög vel. Við gengum í fallegri halarófu uppeftir. Þegar þangað kom voru flestir nokkuð feimnir en náðu sér á strik og vöktu mikla lukku meðal heilmilisfólks á Hvammmi sem gaf þeim ávexti áður en haldið var heim á leið aftur. Nokkrar myndir voru teknar í þessari ferð. Sjá hér

    Í dag komu nýnemar ( voru dregnir) á leikskólann. Þau sungu nokkur lög fyrir börnin sem stóðu og störðu á þessi fyrirbæri. Þetta var liður í inntöku nýrra nemenda við Framhaldsskólann. Nemendurnir voru í svörtum ruslapokum og málaðir og voru nokkur börn frekar hrædd, sérstaklega þegar um skyldmenni var að ræða.    Sjá myndir hér

moya - Útgáfa 1.7 2006 - Stefna ehf

Innskráning