Nýjustu fréttir
-
Útikennsla og fleira.
Almennt - föstudagur 3.sep.10 15:40 - Lestrar 11Að venju er mikið búið að vera að gera hjá okkur í leikskólanum.
Eyja Alexandra kom með sólber í leikskóann í síðustu viku til að gefa okkur að smakka. Við sultuðum úr afgangs berjum í byrjun vikunnar og erum búin að vera að njóta afrakstursins í leikskólanum í þessari viku. Allir sem áhuga höfðu tóku þátt í sultugerð og Magnús Máni sá um ljósmyndun. Myndirnar koma á netið í næstu viku.
Við höfum talsvert skipt börnunum niður eftir kyni og er það að koma vel út. Útikennsla er hafin og gengur vonum framar. Á miðvikudag voru stelpurnar í skóginum. Þær léku sér um allan skóg og fannst mörgum spennandi að pissa í skóginum.
-
Líðandi vika.
Almennt - föstudagur 27.ágú.10 09:51 - Lestrar 23Það er flottur hópur barna sem saman kominn er á Fossi. Börnin ná vel saman í leik og "blandast" vel það er að segja, af deildunum tveimur.
Börnin hafa verið í góðum og rólegum gír og greinilegt er að þau koma vel hvíld úr fríi og eru tilbúin að takast á við það krefjandi verkefni að vera elstu nemendurnir í leikskólanum og að vera góðar fyrirmyndir fyrir yngri börnin.
Margt hefur verið brallað í vikunni.
-
Fengum gesti í dag.
Almennt - mánudagur 23.ágú.10 14:40 - Lestrar 20Við fengum góða gesti í morgun en það voru þeir Jónas Hrafn og Helmuth. Þeir eru 13 ára drengir frá Húsavík og tóku 3 lög fyrir okkur og stóðu sig vel. Friðrik Aðalgeir spilaði einnig á gítar og við sungum Á Sprengisandi.
Síðasta vika gekk ljómanid vel.



