Stjórnun og skipulagning
Sérkennslustjóri starfar samkvæmt lögum og reglugerð um leikskóla, lögum um málefni fatlaðra, öðrum lögum er við eiga aðalnámskrá leikskóla og stefnu Húsavíkurbæjar.
Næsti yfirmaður sérkennslustjóra er skólastjóri.
Megin verkefni sérkennslustjóra
|
|
Ber ábyrgð á skipulagningu, framkvæmd og endurmati sérkennslunnar ásamt deildarstjóra, skólastjóra og eða sérkennsluráðgjafa Fjölskyldu -og skóladeildar. |
|
|
Er faglegur yfirmaður sérkennslunnar í leikskólanum, annast frumgreiningar og ráðgjöf til annara starfsmanna. |
|
|
Ber ábyrgð á upplýsingaflæði milli leikskólans og sérkennsluráðgjafa Fjölskyldu-og skóladeildar. |
|
|
Hefur umsjón með uppeldis og námsgögnum leikskólans sem tengjast sérkennslu. |
Uppeldi og menntun
|
|
Ber ábyrgðá að börnum sem njóta sérkennslu sé boðið upp á þroskavænleg verkefni í leik og starfi á leikskólanum |
|
|
Hefur yfirumsjón með gerð verkefna, áætlana og einstaklingsnámskráa fyrir börn sem þess þurfa í samráði við foreldra og deildarstjóra. |
|
|
Hefur yfirumsjón með að áherslum annarra sérfræðinga sé framfylgt í leikskólanum og að skýrslur og skráningar séu gerðar. |
Foreldrasamvinna
|
|
Hafa náið samstarf við foreldra/forráðamenn barna sem njóta sérkennslu. Sitja og hafa frumkvæði af reglulegum fundum, viðtölum með foreldrum. |
|
|
Veitir foreldrum/forráðamönnum stuðning, fræðslu og ráðgjöf eftir þörfum. |
|
|
Situr foreldrafundi leikskólans. |
Annað
|
|
Ber að hafa náið samstarf við sérkennsluráðgjafa og aðra sérfræðinga sem tengjast leikskólanum vegna barna sem njóta sérkennslu. |
|
|
Situr fundi þar sem fjallað er um málefni barna sem þurfa á sérfræðiaðstoð eða sérkennslu í leikskólanum, samkvæmt boðun yfirmanns eða hluteigandi aðila. |
|
|
Situr starfsmannafundi og aðra fundi sem yfirmaður segir til um varðandi málefni leikskólans. |
|
|
Sinnir þeim verkefnum er varða sérkennsluna sem yfirmaður felur honum. |
Nýjustu fréttir
-
Foreldrafundur
Nemendur - þriðjudagur 2.okt.07 13:51 - Lestrar 1571Foreldrafundur verður haldinn í íþróttasal leikskólans Grænuvalla miðvikudaginn 10.okt kl.20:00.
Dagskrá: *Skólastjóri kynnir vetrarstarfið.
*Foreldrafélag Grænuvalla gerir grein fyrir starfsemi foreldrafélagsins.
Á eftir kynningunum er foreldrum boðið á deildarkynningu ásamt deildarstjóra og starfsfólki viðkomandi deildar.
Verum dugleg að mæta og kynna okkur starfsemi Grænuvalla.
Guðrún H.Jóhannsdóttir
Skólastjóri
-
Endurbættur matseðill Grænuvalla.
Nemendur - mánudagur 1.okt.07 16:43 - Lestrar 1632Matseðill leikskólans verður settur upp vikulega á heimasíðunni og má sjá hann undir hlekknum "Matseðill vikunnar" í valmynd.





