Fréttir
ÞORRABLÓT GRÆNUVALLA 2010.

Þorrablót Grænuvalla.
Þorrablót Grænuvalla verður haldið föstudaginn 22.janúar á Bóndadaginn. Nemendur og kennarar hafa verið undanfarna daga að undirbúa sig af fullum krafti fyrir daginn í myndlistasmiðjum, söng og samverustundum. Það þarf að skreyta salinn, fræða nemendur um þjóðlegar matarvenjur og syngja Þorraþrælinn og ekki má gleyma hangikjötslaginu sem er afar vinsælt á meðal nemenda.
Af þessu tilefni mega nemendur koma í einhverju þjóðlegu t.d. peysu. Þau eru sjálf búin að útbúa sér viðeigandi höfuðfatnað sem þau bera við borðhaldið. Af mörgu er að taka varðandi innihald trogsins eins og hangikjöt, svið, sviðasulta, harðfiskur og fleira íslenskt góðmeti sem þær Þogga, Stúlla og Stína sjá um að útbúa.
Yngri nemendur hefja borðhaldið kl.11:00 og þau eldri kl.12:00.
Góða skemmtun.
AF.
Til baka



