Leikskólinn Grænuvellir

Leikskólinn Grænuvellir

Fréttir

DAGUR LEIKSKÓLANS 6. FEBRÚAR 2010.

Viðburður - miðvikudagur 20.jan.10 14:44 - Lestrar 470

Þann 6.febrúar n.k. er dagur leikskólans, en þann dag árið 1950 stofnuðu frumkvöðlar leikskólakennara fyrstu samtök sín.  Þetta er þriðja árið í röð sem leikskólar halda daginn hátíðlegan.  Daginn ber að þessu sinni upp á laugardag og því verður hann haldinn hátíðlegur föstudaginn 5.febrúar með þeim hætti að við byrjum daginn á því að flagga og bjóðum foreldra og velunnara skólans í opið hús frá kl.09:00-11:00 og 13:00-14:30.

Leikskólakennarar eru sammála um að dagurinn sé í alla staði skemmtileg tilbreyting og ákjósanleg leið til að halda á lofti góðu starfi leikskólans.

AF.


Til baka

moya - Útgáfa 1.7 2006 - Stefna ehf

Innskráning