Leikskólinn Grænuvellir

Leikskólinn Grænuvellir

Fréttir

HEILSUVIKA Á GRÆNUVÖLLUM 8. - 12.FEBRÚAR.

Viðburður - föstudagur 29.jan.10 15:38 - Lestrar 530

Heilsuvika 8.-12.febrúar. 

Nú tökum við á því.

Hreyfingarleysi og mataræði íslenskra barna hefur verið talsvert rætt að undanförnu, þar sem börnin hafa verið að þyngjast óeðlilega mikið.  En hvað getum við helst gert til að stuðla að bættri heilsu barna?  Að sjálfsögðu er það fyrst og fremst reglulegar hollar og góðar máltíðir, borða meira af ávöxtum og grænmeti og hreyfa sig a.m.k. 60 mínútur á dag.  Hreyfing er ekki síður mikilvæg fyrir börnin en hollur matur.  Tímaskortur er algeng skýring á hreyfingarleysi.  Því skiptir vegalengdin eðlilega máli þegar samgöngumáti er valinn.  En þegar litið er á vegalengdir hér á Húsavík kemur í ljós að vegalengdir eru tæpast lengri en 1-2 km á milli heimilis og skóla og oft minna en það.  Hreyfing til heilsubótar þarf því ekki að vera tímafrek en aukinni hreyfingu fylgir aukinn ávinningur eins og bætt sjálfstraust, sjálfsímynd og námsárangur.

Við hvetjum foreldra/forráðamenn til að taka þátt í Heilsuvikunni með börnunum heima, t.d. með því að takmarka tölvuleiki og sjónvarpsáhorf að leikskóla loknum.  Hvetja börnin til hreyfinga, frjálsra leikja og taka þátt í því með þeim.

Af þessu tilefni skorum við á foreldra/forráðamenn að nota eigin orku til að ferðast á milli staða þessa viku.

Börn læra það sem fyrir þeim er haft - verum góð fyrirmynd.

sjá markmið/leiðir

AF.

 

 


Til baka

moya - Útgáfa 1.7 2006 - Stefna ehf

Innskráning