Leikskólinn Grænuvellir

Leikskólinn Grænuvellir

Fréttir

Öskudagurinn 17.febrúar 2010

Viðburður - fimmtudagur 11.feb.10 13:10 - Lestrar 464

Á Öskudaginn verður fjör á Grænuvöllum.

Á Grænuvöllum verða tvö Öskudagsböll, annað kl.09:00 þá mæta Árholt, Tunga, Bali og Berg.  Að balli loknu verður farið út í bæ á hina ýmsu staði og sungið af raust fyrir mæru.

Vilpa og Foss (yngstu nemendurnir) mæta á öskudagsballið kl.09:45, það fer að sjálfsögðu eftir veðri og færð þennan dag hvort þau fara svo í framhaldi af öskudagsballinu út í bæ að syngja fyrir mæru. Annars verður gert eitthvað annað mjög skemmtilegt með þeim.

Húsvíkingar tökum vel á móti yngstu kynslóðinni á Öskudaginn.

Foreldrar/forráðamenn athugið að nemendur mega koma í búningum með fylgihlutum þennan dag.

AF.  


Til baka

moya - Útgáfa 1.7 2006 - Stefna ehf

Innskráning