Fréttir
Góðverkavika 8. - 12. mars 2010
Viðburður - fimmtudagur 4.mar.10 14:30 - Lestrar 366

Góðverkavika á Grænuvöllum.
Þessa viku ætlum við að vera með góðverkaviku í tilefni góðverkadaga sem skátahreyfingin stendur fyrir. Markmiðið er að hvetja nemendur til athafna og umhugsunar um að láta gott af sér leiða, sýna vináttu, hjálpsemi og gera góðverk. Umræðan og starfið tekur mið af góðverkavikunni.
Við hvetjum foreldra til að taka þátt í þessu með okkur með því að ræða góðverk heima og hvetja börnin til góðverka.
Eitt góðverk á dag, kemur skapinu í lag.
AF
Til baka



