Leikskólinn Grænuvellir

Leikskólinn Grænuvellir

Upplýsingar

Almennar upplýsingar

Heimilisfang: Iðavellir 1 640 Húsavík
Símanúmer: 464-6160
Skólastjóri: 464-6157

Skólastjóri GSM: 464-6164

Aðstoðarskólastjóri: 464-6158

Aðastoðarskólastjóri GSM: 464-6161

Eldhús: 464-6159

Sérkennslustjóri: 646-6163
Netfang graenuvellir@nordurthing.is

Skólastjóri: Guðrún Halldóra Jóhannsdóttir (ghj@nordurthing.is)
Aðstoðarskólastjóri: Aðalbjörg Friðbjarnardóttir (abby@nordturthing.is)
Deildarstjórar:


Opnunartími
Leikskólinn er opinn frá  kl.7.45 – 17.15 alla virka daga.  Boðið er upp á 4,5,6,8 og 9 tíma vistun.  Morguntímar eru til kl. 14. og síðdegistímar eru frá kl. 11. 

Hádegisverður                                                                                                                                                                                                                                                                                      

Hádegisverður er frá kl.11:15 fyrir yngstu börnin og 11:30 fyrir eldri börnin, að hádegisverði loknum sofna yngstu börnin og sum elstu en önnur fara í hvíld til kl.12:45.  Við beinum þeim tilmælum til foreldra að þau komi ekki með börnin á þessum tíma.  Ef barn þarf að vera frá leikskólanum t.d. vegna lækniserinda má hafa samband við viðkomandi deild og óska eftir undanþágu á þessari reglu.
Fatnaður
Öll börn skulu hafa með sér fatnað við hæfi, t.d. hlýjan útifatnað, regnfatnað,vettlinga og annan þann fatnað sem hæfir veðri og aðstæðum hverju sinni. Engin ábyrgð er tekin á fatnaði, en allur fatnaður barnanna á að vera merktur,og þau sem þurfa bleyjur hafi þær með sér.   Áríðandi er að börnin hafi daglega fatnað til skiptanna með sér í leikskólann.   Á heilsdagsdeildum er heimilt að geyma föt barnanna yfir vikuna, en tæma verður hólf þeirra á hverjum föstudegi. Vinsamlega hafið ekki nema tvenn pör af skóm með daglega, þar sem engin skóhólf eru til staðar fyrir skófatnað.
 
 
Veikindi
Óheimilt er að senda veikt barn á leikskólann.   Barnið getur verið inni ef þarf, tvo daga eftir veikindi. Vinsamlegast tilkynnið veikindi.
 
 
Gjöld
 Leikskóla og fæðisgjöld greiðast fyrirfram og eru innheimt með gíróseðli.   Ef tveggja mánaða gjöld eru í vanskilum, missir viðkomandi plássið næstu mánaðamót hafi hann ekki gert grein fyrir greiðslum.
 
 
 
Uppsagnarfrestur
Uppsagnafrestur er minnst einn mánuður og skal segja upp skriflega hjá skólastjóra.   Óskir um breytingar á vistunartímum skal sækja um hjá skólastjóra. Ef breytast aðstæður hjá fólki, ber að tilkynna það strax.
 
 
Óhöpp
Óhöpp geta alltaf orðið í stórum barnahópi, þá er haft samband við foreldra og þeir látnir vita.   Farið er með barnið á heilsugæsluna til athugunar.   Öll börn á leikskólanum eru tryggð meðan á dvöl stendur. Öryggiskassar eru í notkun á grænuvöllum og þar eru allar upplýsingar sem þarf til að hægt sé að ná í foreldra ef eitthvað kemur upp á. Áríðandi er að þessar upplýsingar séu réttar og að foreldrar láti vita af breytingum strax og þær verða.


moya - Útgáfa 1.7 2006 - Stefna ehf

Innskráning